Kennslumiðstöð HÍ býður til kynningar þriðjudaginn 20. október kl. 13:00
Staðsetning: Suðurberg, Setberg
Viðburðurinn verður einnig í beinu streymi á Teams.
Tengjast á Teams: https://teams.microsoft.com/meet/31512262875783?p=hJqIF5zlr5aUxMwjia
Rasmus R. Hansen, doktorsnemi við Centre for Educational Development við Aarhus University, mun kynna rannsóknir sínar á notkun gervigreindar í endurgjöf í háskólanámi.
Rannsóknir hans beinast að því hvernig gervigreindarspjallmenni og önnur AI verkfæri geta haft áhrif á upplifun og þátttöku nemenda í endurgjafarferlum og hvernig háskólakennarar geta hannað endurgjöf með þessi nýju verkfæri í huga.
Í kynningunni fjallar Rasmus um þrjár rannsóknir sem rannsóknarhópur hans hefur unnið að frá árinu 2024:
- áhrif svokallaðs AI feedback coach í FeedbackFruits á jafningjaendurgjöf nemenda
- reynslu nemenda af spoken feedback dialogues við kennara annars vegar og mannlegan AI avatar hins vegar
- kennslutilraun þar sem AI endurgjöf og jafningjaendurgjöf voru sameinaðar
Kynningin mun fjalla bæði um möguleika og áskoranir sem fylgja notkun gervigreindar í endurgjöf og hvernig mismunandi hönnun og samþætting AI getur haft áhrif á þátttöku nemenda. Einnig verður fjallað um hvernig hlutverk kennara og nemenda kunna að breytast eftir því sem AI fær stærra hlutverk í endurgjafarferlum.
Gert er ráð fyrir að kynningin taki um eina klukkustund og síðan verði svigrúm fyrir spurningar og umræður.
Fyrirlesari: Rasmus R. Hansen, Aarhus University
Staða: PhD Student, Centre for Educational Development