Ertu að leita að leiðum til að auka virkni nemenda og bæta endurgjöf í námskeiði fyrir haustmisserið 2026?Komdu á kynningu á FeedbackFruits – fjölbreyttu kennslutóli sem er aðgengilegt gegnum Canvas.
Þriðjudaginn 2. júní býður Kennslumiðstöð uppá kynningu á FeedbackFruits þar sem farið verður stuttlega yfir tólin sem í boði eru. Kynningin er hugsuð fyrir alla kennara sem hafa áhuga á að nýta FeedbackFruits í kennslu.
Upplýsingar sem farið verður yfir á kynningunni
- Yfirlit yfir öll tólin í FeedbackFruits. - Hvernig veljum við réttu tólin fyrir mismunandi námsmarkmið. - Hvernig setjum við upp FeedbackFruits tól í Canvas
Umsjónarmaður kynningarinnar er Harpa Dögg Fríðudóttir, verkefnisstjóri við Kennslumiðstöð.
Kynningin fer fram 10:00-11:15 á Teams
Hægt er að fræðast nánar um tólin í FeedbackFruits í gengum þennan tengil.
Þetta er frábært tækifæri til að fá yfirsýn yfir þau frábæru tól sem FeedbackFruits hefur upp á að bjóða og fá svör við spurningum beint frá sérfræðingum. Skráning fer fram í gegnum Ugluna HÉR
Við hlökkum til að sjá þig!
Bestu kveðjur,
Canvas teymið Kennslumiðstöð