Kennslumiðstöð býður upp á vinnustofu sem snýr að ABC (learning design) hugmyndafræðinni. Hér hefur Kennslumiðstöð þróað nýjar leiðir innan ABC námshönnunarinnar þar sem gervigreindin er nýtt í hugmyndavinnu og til að uppfæra námskeið. Gert er ráð fyrir að vinnustofan taki um tvær klukkustundir.
Nánari upplýsingar um vinnustofuna:
ABC LD (learning design) gengur út á endurskoðun námskeiða þar sem háskólakennarar vinna saman í litlum hópum við að búa til sjónrænt söguborð (storyboard) yfir námskeiðin sín og þá kennsluhætti sem þeir telja vænlegasta til að á hæfniviðmiðum námskeðs. ABC aðferðin er meðal annars gagnleg þegar verið er færa staðbundna kennslu í fjarnámsform eða að innleiða rafræna kennsluhætti. Aðferðina má jafnframt nýta almennt í námskeiðshönnun, kennsluþróun og endurskoðun námskeiða.
Í þessari vinnustofu er um að ræða uppfærða ABC vinnustofu þar sem við nýtum gervigreindina til að betrumbæta endurhönnun námskeiða. Gervigreindin verður notuð til að endurskoða námskeið þar sem farið er í hugmyndafræði ABC og hvernig nýta má möguleika gervigreindarinnar. Gert er ráð fyrir að kennarar vinni með fyrirfram ákveðið námskeið í huga. Einn kennari getur unnið með eitt námskeið en það getur einnig verið gagnlegt að kennarar sem kenna sama námskeið komi saman á sömu vinnustofu til að vinna gagngert að endurskoðun viðkomandi námskeiðs. Einnig getur ABC vinnustofan verið nytsamleg í ferlinu við endurskoðun námsleiða.
Farið verður yfir þau verkfæri sem kennari getur notað til að virkja nemendur, bæði í kennslustofunni, í Canvas og í verkfærakistu FeedbackFruits.
Vinnustofan fer fram í Setbergi-Suðurberg, 3ja hæð, stofa 305 þann 19. maí , kl.12-14. Vinsamlegast skráið ykkur.
Sjá upplýsingar í Uglu hér ásamt skráningarsíðu.
Bestu kveðjur,
Kennslumiðstöð Háskóla Íslands