AI image
Hvenær
24. febrúar 2026
13:30 til 15:00
Hvar
Á netinu
Teams
Nánar

Á þessu námskeiði verður fjallað um hvernig kennarar geta hannað markvissara og merkingarbærara námsmat í námsumhverfi þar sem gervigreind gegnir sífellt stærra hlutverki. Fjallað verður um LOUIS-rammann í kennslu við Háskóla Íslands og hvernig hann getur stutt við námsmat sem stuðlar að dýpri skilningi og gagnrýnni hugsun.

Farið verður yfir:

  • hvernig velja má viðeigandi stig gervigreindarnotkunar í námskeiðum

  • hvernig setja má fram yfirlýsingar um notkun gervigreindar í stærri verkefnum

  • hvað kennarar geta gert ef notkun gervigreindar verður að áhyggjuefni

Námskeiðið er ætlað kennurum sem vilja fá hagnýtan stuðning við hönnun námsmats á tímum gervigreindar.

Þátttakendur vinna með eigið kennsluefni á námskeiðinu. Vinsamlegast takið með fartölvu og eitt verkefni sem þið viljið gera meira AI-þolið. Námskeiðið er blanda af fræðslu, umræðum og hagnýtri vinnu þar sem unnið verður að endurhönnun verkefnis fyrir næstu önn.

Umsjón með námskeiðinu hefur Beth Rogers, verkefnastjóri og gervigreindarsérfræðingur hjá Kennslumiðstöð (The Teaching Center).

Skráning er nauðsynleg.
Athugið að lágmarksfjöldi þátttakenda er 5.

Tengill á fundinn í Teams

Sjá upplýsingar í Uglu hér ásamt skráningarsíðu. 

 

Share