Aurora námsefni

Aurora leggur áherslu á að kennsluefni háskóla hafi sjálfbærni að leiðarljósi og kennt sé þvert á fræðigreinar. Öllum er þegar ljóst að eingöngu með sameiginlegu átaki fræðigreina sé hægt að takast á við hnattrænar samfélagslegar áskoranir.

    Titill
    Kennsla til samfélagslegra áhrifa

    Text

    Til að ná markmiðum í kennslu til samfélagslegra áhrifa skal námsefni Aurora skólanna hafa þverfræðilega nálgun, hafa beina tengingu við eitt eða fleiri af Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna og geta stutt við eitthvert af fimm áherslusviðum Aurora. Þar að auki er nauðsynlegt að þræða þverfræðileg hæfni beint inn í námsefni Aurora.

    Í þéttu samstarfsneti Aurora skólanna er auðvelt að finna samstarfsaðila til að þróa saman Aurora námsefni, út frá ólíkri fræðigrein, áhuga og samfélagslegum vandamálum.

    Image
    Image
    Fjarnám

    Námsefni Aurora

    Engin ein fræðigrein getur fundið lausn á samfélagslegu vandamáli heldur þurfa fleiri fræðigreinar að koma saman. Með samhentu átaki næst besti árangurinn. Deildarmúrar þurfa að víkja svo þverfræðileg kennsla blómstri.

     

    Nokkrar leiðir til að hugleiða:

    Kennari HÍ finnur samstarfsfélaga innan Aurora

    Finndu þér samstarfsfélaga hjá hinum Aurora skólunum úr ólíkri fræðigrein og þróið og kennið nýtt námskeið saman. Hinn kosturinn er að fella saman námskeið sem þegar eru kennd.

     

    Kennarar HÍ finna saman samstarfsfélaga innan Aurora

    Finndu þér samstarfsfélaga innan HÍ, úr ólíkri fræðigrein, og finnið saman samstarfsfélaga innan Aurora skólanna til að þróa og kenna námskeið saman.Hinn kosturinn er að fella saman þegar kennd námskeið.

     

    Gamalt námskeið fært í nýjan búning með áherslu á samfélagslega ábyrgð og hæfni nemenda.

    Hugsaðu þitt námskeið upp á nýtt með tilliti til kennslu til samfélagslegra áhrifa, finndu samstarfsfélaga utan þíns fræðasviðs innan HÍ sem myndi efla þitt námskeið með sinni aðkomu og beina því í átt að samfélagslegrar nýsköpunar. Saman getið þið fundið samherja innan Aurora skólanna.

     

    Nýtt námskeið þróað með áherslu á samfélagslega ábyrgð og hæfni nemenda.

    Finndu þér vandamál sem þú vilt leysa. Horfðu jafnvel til kennsuaðferðanna sem hvetja til samstarfs við þjónustuaðila samfélagsins og hagaðila til að finna saman vandamál til að leysa. Þjónustunám (e. Community Service Learning) er t.d kjörin leið til þess. Finndu þér samstarfsfélaga hjá hinum Aurora skólunum úr ólíkri fræðigrein og fáðu hann til liðs við þig til að þróa námskeiðið saman.

     

    Heimsmarkmið SÞ er ágætis leiðarvísir og viðmið í sjálfbærnimarkmiðum. Aurora leggur áherlsu á að námskeið séu hönnuð með beinni tengingu við eitthvert af Heimsmarkmiðum SÞ (e. UN Sustainable Development Goals - SDGs).

    • Skoðaðu þitt námskeið út frá Heimsmarkmiðunum, ef það hefur ekki þegar tengingu athugaðu hvað þarf til að búa til slíka tengingu. Veldu að minnsta kosti eitt heimsmarkmið sem einkennir þitt námskeið en þau mega vissulega vera fleiri.
    • Ef þú ert að hugleiða að þróa nýtt námskeið, hafðu Heimsmarkmiðin þá í huga.

    Heimsmarkmið SÞ

    LOUIS

    LOUIS verkfærið er til þess gert að efla þverfræðilega hæfni nemenda. Með Louis fá kennarar verkfæri til að setja hæfnviðmið námskeiða í orð sem auðveldar að ræða við nemendur sína hvaða þverfræðilegu hæfni á við hverju sinni.

    LOUIS verkfærið umbreytir þverfræðilegri hæfni í áþreifanlegan námsárangur nemenda. LOUIS skilgreinir yfirhæfni og undirhæfni og býður upp á tungutak og orðfæri til að útskýra fyrir nemendum framfarir þeirra frá meiri til minni og frá minni til flóknari færni. LOUIS er stuðningstól fyrir kennara við að samþætta almenna hæfni inn í kennslu sína með skilgreininum og hugtökum á þverfræðilegri hæfni.

    Aurora skólarnir hafa komið sér saman um fimm áherslusvið í í sameiginlegu Aurora námi og kennslu; stefnt er að þróun námskeiða, örnáms og námsleiða innan þessara áherslusviða.

    • Sjálfbærni og loftslagsbreytingar
    • Stafrænt samfélag & alþjóðleg borgaravitund
    • Menning: Margbreytileiki & sjálfsmyndir
    • Heilsa & vellíðan
    • Samfélagsleg frumkvöðlafræði & nýsköpun 

    Hafa ber áherslusviðin þrjú í huga þegar námsefni er þróað eða breytt, hvort sem um er að ræða gamalt námskeið eða nýtt búið til.

    Fellur þitt námskeið undir eitt af áherslusviðum Aurora? Viltu þróa það í þá átt eða breyta því í nýtt námskeið með samstarfsfélaga frá Aurora háskóla?