Velkomin á kennsluvef Aurora
Aurora er háskólabandalag níu evrópskra háskóla sem vinnur að umbreytingu háskólanáms í þágu sjálfbærni og samfélagslegrar nýsköpunar. Aurora er eitt af sextíu og fimm háskólabandalögum Evrópu en með þeim er lagður grunnur að sameiginlegu menntasvæði Evrópu.
Samstarfið í kennslu snýst um að kenna til samfélagslegra áhrifa með innleiðingu kennsluaðferða og verkfæra sem byggja á sjálfbærni og þverfræðilegri nálgun. Hæfni nemenda þvert á fræðigreinar er forgangsmál hjá Aurora en hæfni nemenda er lykilatriði í að stuðla að samfélagslegri nýsköpun sem nauðsynleg er til að takast á við hnattrænar áskoranir heimsins. Aurora skólarnir hafa einnig skuldbundið sig til að þróa saman og kenna sameiginlegt Aurora nám þvert á skólana. Meira um Aurora samstarfið.
Titill
Kennsla til samfélagslegra áhrifa
Kennsluhugsjón Aurora snýst um nýsköpun í kennslu til samfélagslegra áhrifa með það að markmiði að útskrifa nemendur með hæfni sem nýtist í þágu samfélagslegra breytinga.
Til að ná markmiðinu leggur Aurora áherslu á fjórar stoðir í kennslu:
- Að þróa þverfaglegt námsefni sem taki mið af sjálfbærni og samfélagslegum þörfum.
- Að innleiða samfélagsmiðaðar og inngildar kennsluaðferðir.
- Að hæfniviðmið nemenda miðist við samfélagslega ábyrgð, frumkvöðlafærni og aðra þverfræðilega hæfni.
- Að bjóða upp á alþjóðlegt nám og kennslu með viðkenndu skiptinámi sem eykur alþjóðahæfni nemenda.
Undir hverri stoð er að finna kennsluaðferðir og kennsluverkfæri sem auðveldar að ná markmiðum Aurora.
Sameiginlegt Aurora nám
Aurora námskeið eru stök námskeið, þróuð og kennd þvert á Aurora skólana og opin nemendum allra Aurora háskólanna níu.
Námskeiðin eru auglýst í Aurora Kennsluskrá með hlekk yfir á Kennsluskrá HÍ.
Aurora nemendur skrá sig í námskeið í gegnum HÍ skráningargátt stakra námskeiða og fá aðgang að Canvas og Inspera.
Þreyttar einingar Aurora nema enda hjá fræðasviði/deild.
Tilvalin leið til að fjölga nemendum í fámennum námskeiðum en ekki síður til að fjölga námskeiðavali lítilla námsbrauta.
Einkenni Aurora námskeiða:
1. Sjálfbærniáhersla og tenging við eitthvert af Heimsmarkmiðum SÞ.
2. Þverfræðilegt - Viðfangsefnið nálgast út frá ólíkum fræðigreinum.
3. Tenging við eitt af fimm áherslusviðum Aurora.
- Sjálfbærni og loftslagsbreytingar
- Stafrænt samfélag & alþjóðleg borgaravitund
- Menning: Margbreytileiki & sjálfsmyndir
- Heilsa & vellíðan
- Samfélagsleg frumkvöðlafræði & nýsköpun
4. Þverfræðileg hæfni innleidd í námskeiðið t.d LOUIS
5. Notkun á einhverri af kennsluaðferðum og verkfærum Aurora: CSL, COIL osfrv.
Þrjár leiðir eru í boði:
1. Nýtt námskeið þróað með öðrum Aurora háskóla
Námskeið með sjálfbærniáherslu er þróað og kennt þvert á fræðigreinar af tveimur eða fleiri Aurora háskólum.
Aurora kennsluaðferðir og verkfæri eru nýttar til að hámarka almenna hæfni nemenda, t.d CSL, LOUIS eða COIL.
Viltu finna samstarfsfélaga í kennslu við Aurora háskóla?
Hafðu samband við Söndru Berg Cepero, verkefnisstjóri Aurora kennslu á Kennslusviði sandra@hi.is / 525-4896
2. Tvö eldri námskeið úr sitt hvorum skólanum sett saman í eitt nýtt námskeið
Námskeið með sjálfbærniáherslu er þróað og kennt þvert á fræðigreinar af tveimur eða fleiri Aurora háskólum.
Aurora kennsluaðferðir og verkfæri eru nýttar til að hámarka þverfræðilega hæfni nemenda, t.d LOUIS, CSL eða COIL.
Viltu finna samstarfsfélaga í kennslu við Aurora háskóla?
Hafðu samband við Söndru Berg Cepero, verkefnisstjóri Aurora kennslu á Kennslusviði sandra@hi.is / 525-4896
3. HÍ námskeið opnað sem Aurora námskeið
Kennarar HÍ opni sín námskeið og bjóði sem Aurora námskeið, með ákveðnum skilyrðum þó.
- Að námskeið sé kennt á ensku og sé með fjarkennslumöguleika.
- Að námskeið hafi tengingu við eitthvert Heimsmarkmiða SÞ og flokkist eftir einu af áherslusviðum Aurora
- Að námskeið taki mið af hæfniviðmiðum Aurora t.d LOUIS.
- Að námskeið sé kennt með einhverri af Aurora kennsluaðferðunum t.d CSL eða COIL
Dæmi um HÍ Aurora námskeið:
Háskóli Íslands, CBS í Kaupmannahöfn og Háskólinn í Napólí tóku sig saman og þróuðu saman námskeiðið Kveikju sem var áður í boði við Viðskiptafræðideild HÍ.
Viltu bjóða námskeiðið þitt fram sem Aurora námskeið?
Fylltu út þessa stuttu umsókn eða hafðu samband við Söndru Berg Cepero, verkefnastjóra Aurora kennslu á Kennslusviði sandra@hi.is / 525-4896
Örnám (e. Micro-Credentials)
Örnám er stutt nám sem getur staðið eitt og sér eða hægt er að meta inn í lengri námsleiðir. Örnám er nýjung í námi til að mæta þörfum breyttrar samfélagsgerðar og vinnumarkaðs sem kallar á meiri sveigjnaleika.
Einkenni örnáms
- Hæfni - nemandi safnar upp hæfni sem hentar hans þörfum og notagildi.
- Sveigjanleiki - nemendi fær aukinn sveigjanleika til að þróa sína þekkingu og hæfni sem eflir hann persónulega og í starfi.
- Inngilding - nemandi með óhefðbundinn bakgrunn; úr minnihlutahópi eða í viðkvæmri stöðu, fær tækifæri og aðgang að menntun sem hann ella hefði ekki.
- Símenntun - er lykillinn að því að einstaklingur viðhaldi þekkingu og hæfni sem þarf til að dafna í persónulegu- sem og starfstengdu lífi sínu.
Þróun örnáms
Örnám verður þróað innan Aurora eftir áherslusviðunum fimm en kennarar frá ólíkum Aurora skólum eru hvattir til að þróa og kenna saman örnám eftir eigin smekk og áhugasviði svo lengi sem það passar inn í sviðin fimm.
- Sjálfbærni og loftslagsbreytingar
- Stafrænt samfélag & alþjóðleg borgaravitund
- Menning: Margbreytileiki & sjálfsmyndir
- Heilsa & vellíðan
- Samfélagsleg frumkvöðlafræði & nýsköpun
Dæmi um þátttöku HÍ í Aurora örnámi - Understanding Europe.
Dæmi um Aurora örnám Sustainability & Climate Change
Líkt og með örnám hafa Aurora skólarnir skuldbundið sig til að þróa sameiginlegar námsleiðir sem tengjast beint inn á áherslusvið Aurora.
- Sjálfbærni og loftslagsbreytingar
- Stafrænt samfélag & alþjóðleg borgaravitund
- Menning: Margbreytileiki & sjálfsmyndir
- Heilsa & vellíðan
- Samfélagsleg frumkvöðlafræði & nýsköpun
Nú þegar hefur farið af stað vinna við að þróa sameiginlega Aurora MS námsleið "Stafrænt samfélag, samfélagsleg nýsköpun og alþjóðleg borgaravitund".
Námsleiðin verður 2ja ára MS námsleið, rannsóknarmiðuð og opin fyrir nemendur með fjölbreyttar BS/BA gráður.
Markmið námsleiðarinnar er að útskrifa sérfræðinga sem geta tekið á og skilið áskoranir og tækifæri samfélagslegra breytinga sem heimurinn stendur frammi fyrir. Það eru t.d mörg siðferðisleg álitamál sem koma upp í breyttum heimi sbr mannréttindi, lýðræði, frelsi fjölmiðla osfrv.
Fimm Aurora skólar taka þátt í að þróa námsleiðina og kenna ásamt nokkrum öðrum evrópskum háskólum, rannsóknarstofnunum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Gert er ráð fyrir að kennsla hefjist haustið 2025.
Nánari upplýsingar um EURIDICE verkefnið; námsleiðina og samstarfsaðila.
Titill
Finndu þér samstarfsfélaga í kennslu hjá Aurora skólunum
Vrije háskólinn - Amsterdam, Hollandi
Viðskiptaháskólinn í Kaupmannahöfn (CBS) - Danmörku
Háskólinn í Duisburg-Essen - Þýskalandi
Palacký háskólinn - Olomouc, Tékklandi
Háskólinn í Innsbruck - Austuríki
Rovira i Virgili háskólinn - Tarragona, Spáni
Federico II háskólinn - Napólí, Ítalíu
Paris-Est Créteil háskólinn - París, Frakklandi
Titill
Aurora kennsluþróun
Með þátttöku í Aurora samstarfinu öðlast kennarar ýmis tækifæri til starfsþróunar.
- Flétta sjálfbærni inn í námskeið
- Tileinka sér kennsluaðferðir og verkfæri sem einblína á alvöru samfélagsleg vandamál.
- Þróa og kenna námskeið í samvinnu við Aurora samstarfsfélaga
- Kenna við erlenda háskóla - stað-og fjarnám
- Sækja námskeið og viðburði á vegum Aurora
Titill
HÍ-26
Ein af fjórum stoðum í stefnu HÍ-26 er "opinn og alþjóðlegur háskóli" sem kallast vel á við kennsluhugsjón Aurora en í stefnunni eru markmiðin:
- Þverfaglegt starf
- Alþjóðatengsl
- Nýsköpun og framfarir
- Starfshæfni nemenda