Gervigreind getur nýst í námi, kennslu, rannsóknum og stjórnsýslu, en notkun hennar þarf ávallt að vera ábyrg, gagnsæ og örugg. Á þessum síðum finnur þú leiðbeiningar um þau lykilatriði sem hafa þarf í huga við notkun gervigreindarverkfæra innan Háskóla Íslands.
Hér er fjallað um:
- Akademísk vinnubrögð og höfundarrétt.
- Persónuvernd og gagnaöryggi.
- Hlutdrægni og siðferðileg álitamál.
- Gildandi reglur og stefnur háskólans.
Veldu þann flokk hér að neðan sem við á til að fá nánari upplýsingar.