Hvenær
13. janúar 2026
10:00 til 12:00
Hvar
Setberg
Rými Kennslumiðstöðvar 2.hæð
Nánar
Dagana 12 og 13. janúar mun Kennslumiðstöð bjóða uppá opna vinnustofu í Canvas. Vinnustofan er hugsuð fyrir kennara sem eru að vinna í því að setja upp námskeiðsvefi fyrir komandi misseri. Sérfræðingar verða á staðnum til að veita aðstoð og svara spurningum.
Dæmi um aðstoð sem kennarar geta fengið í vinnustofunni:
- Aðstoð við uppsetningu á verkefnum og vægi verkefnahópa
- Aðstoð við að setja upp verkefni í FeedbackFruits
- Aðstoð við að flytja efni á milli námskeiða
- Uppsetning á kennsluáætlun í Canvas
Vinnustofan verður frá 10:00-12:00 í rými Kennslumiðstöðvar á 2. hæð í Setbergi. Vinnustofan er opin og geta kennarar komið og farið eftir hentisemi.
Bestu kveðjur,
Canvas teymi Kennslumiðstöðvar