Hvenær
13. October 2025
13:00 til 14:30
Hvar
Setberg
3.hæð Suðurberg
Nánar

Fjölmenningarfærni og menningarnæmi sem eykur kennsluhæfni 

Viltu efla hæfni þína til að kenna í fjölbreyttu háskólasamfélagi og skapa öruggt, og inngildandi námsumhverfi fyrir alla nemendur? 

Í þessari hagnýtu og gagnvirku vinnustofu fá þátttakendur tækifæri til að: 

  • Kynnast hugmyndum um menningarnæmi og fjölmenningarfærni í háskólasamhengi  
  • Kynnast menningarnæmisrófinu og þróa með sér dýpri meðvitund um eigin viðhorf og gildi sem hafa áhrif á samskipti í skólastofunni.  
  • Skoða menningarísjakann og hvernig fjölbreyttar sjálfsmyndir nemenda birtast í háskólanámi  
  • Rýna í hvernig mismunun, fordómar og öráreitni geta birst í háskólastarfi – bæði meðvitað og ómeðvitað  
  • Ræða leiðir til að bregðast við þessum áskorunum á uppbyggilegan og faglegan hátt innan kennslustofunnar 
  • Fá 10 hagnýt ráð til að vera inngildandi kennari og stuðla að jöfnuði og virðingu í kennslustofunni og í samskiptum við nemendur  

Vinnustofan byggir á rannsóknum og reynslu og veitir þátttakendum verkfæri til að efla samskipti, kennslufærni og fagmennsku í fjölmenningarlegu háskólasamfélagi. Hún hentar háskólakennurum og starfsfólki sem vilja efla færni sína í að takast á við fjölbreytileika og stuðla að inngildandi og réttlátu námsumhverfi. 

Vinnustofan er samstarfsverkefni Kennslumiðstöðvar HÍ og Spretts, verkefni sem miðar að því að undirbúa nemendur með innflytjendabakgrunn til háskólanáms.  

Umsjón: Aleksandra Kojic, verkefnisstjóri á Kennslumiðstöð og Juan Camilo Roman Estrada verkefnisstjóri Spretts. 

Tengill í skráningu.

Share