Nemandi umkryngdur prófvörðum í prófi
1. Almenn prófatímabil
Nemendur að þreyta próf
Nemendur að þreyta próf

Hvað er átt við?

  • Almennar próflotur þvert á fræðasvið háskólans við enda haust- og vormisseris.
  • Prófaskrifstofa sér um skipulag og framkvæmd slíkra prófa í samráði við kennara/deildir.
  • Oftast er um að ræða lokapróf námskeiða sem kennari hefur þegar skilgreint hvað vegi mikið í lokaeinkunn.
  • Prófstjóri hannar próftöflur fyrir öll svið háskólans og sendir deildum reglulega til yfirlestrar.
    • Deildarstjórar áframsenda á sína kennara sem geta svo annaðhvort samþykkt eða óskað eftir breytingu á tímasetningum prófa sinna. Alltaf er reynt eftir bestu getu að verða við óskum allra þó stundum takist það ekki alveg fyrir alla.
  • Eftir að öllum ábendingum frá deildum hefur verið sinnt er loka-afurðin birt og verður þá sýnileg bæði kennurum og nemendum.
  • Kennarar geta nálgast próftöflu síns sviðs gegnum eftirfarandi tengil: UGLA-Próftafla

Hvað felst í framkvæmd og skipulagningu Prófaskrifstofu?

  • Prófstjóri Háskóla Íslands gefur út miðlægar próftöflur, sýnilegar nemendum, fyrir öll svið Háskóla Íslands og á það einnig við um sjúkra- og endurtökupróf.
  • Prófaskrifstofa ræður prófverði til að gæta heiðarleika nemenda.
  • Prófaskrifstofa sér um að bóka prófstofur og raða nemendum í þær.
    • Sú röðun, í hvaða prófstofu og í hvaða sæti nemandi á að þreyta próf sitt, kemur svo fram á próftöflu sérhvers nemanda
  • Eftir að Prófstjóri hefur birt próftöflu geta nemendur geta skoðað próftöflu sína með því að skrá sig inn í Uglu, smellt á „Uglan mín" og „Námskeiðin mín" en þar blasir við „Próftaflan mín."
  • Hér er beinn tengill í Próftöflu innan Uglu: Próftaflan mín
  • Utan við hverja prófstofu á prófdegi, hangir sætalisti nemenda sem nemandi getur skoðað og staðfest að hann sé á réttum stað.
  • Hér er tengill á starfsmannasíðu Prófstjóra: Prófstjóri Háskóla Íslands
  • profstjori@hi.is er netfangið sem starfsfólk Háskóla Íslands getur notað til að fá almennar upplýsingar um próf og próftöflur.
2. Próf á vegum kennara/deilda
Mynd af nemendum í Inspera prófi
Mynd af nemendum í Inspera prófi

Hér er átt við ýmiskonar verkefni og próf, hluta og/eða lokapróf sem kennari heldur á eigin vegum, án aðkomu Prófaskrifstofu.

Próf eða verkefni sem eru haldin án hverskyns aðkomu Prófaskrisftofu koma EKKI fram próftöflum nemenda í UgluÞví er mikilvægt að kennari haldi nemendum sínum upplýstum um:

  1. Tímasetningar prófa.
  2. Að þeir geti látið sig vita ef þeir eiga rétt á sérúrræðum.
  3. Fá ráðleggingar um framkvæmd sérúrræða ef einhver eru hjá Námsráðgjöf - urraedi@hi.is 

ATH: Kennari getur þó alltaf óskað eftir aðkomu Prófaskrifstofu varðandi framkvæmd prófa sinna í heild eða að hluta með því að fylla út umsóknareyðublaðið Ósk um aðstoð prófaskrifstofu vegna framkvæmdar prófs

  • Sé óskað eftir aðstoð prófaskrifstofu rata slík próf inn í miðlæga Hlutapróftöflu þess misseris sem við á.
  • Einnig geta nemendur nálgast samskonar upplýsingar um tíma og staðsetningu prófsins gegnum „Próftaflan mín" eins og fyrir almenn próftímabil
Share